Breytt bros,
breytt líf
Öll viljum við hafa fallegt og heilbrigt bros
Ordoline tannréttingaskinnur eru ýmist notaðar til að rétta skakkar tennur, laga minniháttar tannskekkjur og einnig sem hluti af heildartannréttingameðferð í flóknari tannréttingu.
Skinnurnar eru framleiddar úr hágæða, BPA-fríu plastefni sem gerir þær bæði öruggar, þægilegar og næstum ósýnilegar. Þær eru mótaðar sérstaklega fyrir hvern og einn með nákvæmri þrívíddartækni og sérfræðigreiningu, sem tryggir árangursríka og fyrirsjáanlega meðferð.
Meðferðartíminn með skinnum getur staðið yfir frá nokkrum mánuðum upp í 24 mánuði eða jafnvel lengur ef nauðsyn krefur.
Hvernig virka tannréttingar með Ordoline?
1. Skoðun hjá tannlækni eða tannréttingasérfræðing
Talaðu við tannlækninn þinn og biddu um álit þeirra hvort að Ordoline henti þér og þínum tönnum. Góð tannheilsa þarf að vera til staðar áður en hafist er handa á tannréttingum.
2. Meðferðaráætlunin
Við munum vinna með tannlækninum þínum að meðferðaráætlun – hvernig tennurnar munu hreyfast og hversu langan tíma meðferðin tekur. Hjá Ordoline starfa tannréttingasérfræðingar við áætlanir sem tryggir eins fyrirsjáanlegar meðferðir og mögulegt er. Tannlæknirinn þinn getur jafnvel deilt þessari áætlun með þér svo þú getir séð óskaniðurstöðuna áður en meðferð hefst.
3. Meðferð þín
Þegar skinnurnar eru tilbúnar mun tannlæknirinn ganga úr skugga um að þær passi þér vel og gefa þér leiðbeiningar varðandi framhaldið. Þið ákveðið hvenær þú kemur í skoðun yfir meðferðartímann. Það helsta sem þú þarft að gera er að nota skinnurnar í 22 tíma á dag. Þær munu hreyfa tennurnar þínar smátt og smátt nær brosinu sem þú átt skilið!
Hvað kosta tannréttingar með Ordoline skinnum?
Kostnaður við tannréttingu fer eftir lengd meðferðar og umfangi hennar. Meðferð getur tekið lengri tíma en upphaflega er áætlað. Tannlæknirinn þinn setur fram kostnaðaráætlun byggða á þínum þörfum.
Þjónustuaðilar

